5 gjafahugmyndir fyrir heimilið
Það getur verið erfitt að finna réttu gjöfina, sérstaklega þegar maður vill gefa eitthvað sem er bæði fallegt og nytsamnlegt.
Hjá okkur ættir þú að finna eitthvað við allra hæfi
Allar vörur okkar eru vegan og cruelty-free, unnar úr náttúrulegum innihaldsefnum og án skaðlegra efna. Vörurnar frá The Gift Label Amsterdam eru hannaðar með sjálfbærni að leiðarljósi, án þess að gefa neitt eftir þegar kemur að gæðum eða útliti. Umbúðirnar eru stílhreinar og vistvænar, hannaðar til að vera bæði fallegar og endurnýtanlegar – fullkomnar sem gjöf sem gleður á allan hátt.
Kertin okkar eru gerð úr 100% náttúrulegu sojabaunavaxi og ilmefnum úr sojauppruna. Þau brenna jafnt og lengi – allt frá um 24 klukkustundum í minni kertum upp í allt að 90 klukkustundir í þeim stærstu.
Hér eru 5 gjafahugmyndir fyrir heimilið sem henta fyrir flest tilefni.
1. Ilmkerti
Ilmkerti eru ein vinsælasta gjafavaran í dag og það er ekki að ástæðulausu. Þau skapa notalega stemningu og henta í flest rými heimilisins. Fallegt ilmkerti getur breytt andrúmslofti herbergis á einfaldan hátt og er því alltaf örugg gjöf
2. Smávörur fyrir daglegt líf
Litlar en nytsamlegar vörur eru oft vanmetnar gjafir. Hluti sem fólk notar daglega getur haft meiri áhrif en stærri gjafir.
Handáburðir og varasalvi
Ilmsteinar
Handsápur
3. Skemmtilegur borðbúnaður sem gleður
Borðbúnaðurinn frá The Gift Label Amsterdam er fullkomin gjöf fyrir þá sem elska fallega og skemmtilega hönnun. Litríkir bollar og diskar með jákvæðum skilaboðum gera hversdagsstundir aðeins bjartari – lítil gjöf sem gleður mikið.
4. Ilmur sem breytir rýminu á augabragði
Hýbílailmur og ilmstangir eru fullkomnar gjafir fyrir þá sem kunna að meta notalegt andrúmsloft. Með nokkrum spreyjum eða fallega uppsettum ilmstöngum er auðvelt að skapa rólega og hlýlega stemningu á heimilinu.
5. Gjafasett
Að setja saman nokkrar vörur í eitt gjafasett er frábær hugmynd. Til dæmis ilmkerti ásamt öðrum heimilisvörum sem passa vel saman. Við erum líka með mikið úrval af fallegum gjafaöskjum sem eru fullkomnar í gjafir.
Stone diffuser og ilmkerti
Gjafaaskja
Ilmkerti og ilmstangir
Duo pack og ilmkerti